Þrír öflugir stjórnendur ráðnir til starfa hjá Baseload Power á Íslandi

Baseload Power á Íslandi hefur nýverið ráðið til starfa þá Guðmund Páll Líndal, viðskiptaþróunarstjóra, Gunnar Gunnarsson, auðlindastjóra, og Sæmund Guðlaugsson, rekstrarstjóra virkjana.
Guðmundur Páll Líndal hefur mikla þekkingu á framleiðsluskölun, mörkun, markaðssetningu og sölu, og færir Baseload Power á Íslandi því verðmæta reynslu og liðsstyrk. Hann er með meistaragráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands, en hann hefur einnig ríka reynslu af viðskiptalífinu, enda hefur hann sem frumkvöðull og stofnandi komið á fót vörumerkjum á við Lava Cheese, ostasnakkinu sem hefur náð fótfestu og öðlast vinsældir víða um Evrópu. Í hlutverki sínu sem viðskiptaþróunarstjóri mun Guðmundur Páll bera ábyrgð á því að viðhalda og stækka núverandi viðskiptasambönd Baseload, efna til nýs samstarfs og stýra viðskiptaþróun félagsins innan jarðhitaverkefna þess.
Sæmundur Guðlaugsson er þaulreyndur á sviði jarðhita, en hann býr yfir víðtækri þekkingu og starfsreynslu við viðhald og rekstur jarðhitavirkjana og hitaveitna. Þá hefur hann sömuleiðis leitt fjölmörg nýsköpunar- og umbótaverkefni á þessu sviði og borið ábyrgð á fjárfestingarverkefnum í rekstri og búnaði jarðhitaverkefna. Sæmundur stóð að stofnun viðgerðaþjónustu á túrbínuíhlutum Orku Náttúrunnar, sem er stærsti jarðhitaframleiðandi Íslands ásamt almennu vélaviðhaldi orkuveranna. Hann hefur meistaragráðu í verkefnastjórnun og hefur sömuleiðis lokið prófgráðum í vélatækni og viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík. Sæmundur býr yfir sérþekkingu á fyrirbyggjandi viðhaldi og viðgerðum, nýsköpun, verkefnastjórnun ásamt framúrskarandi rekstrarháttum.
Gunnar Gunnarsson hefur doktorsgráðu í tilraunaeðlisfræði frá Háskólanum í Basel í Sviss, meistaragráðu í eðlisfræði frá Kaupmannahafnarháskóla og B.Sc. í eðlisfræði og jarðeðlisfræði frá Háskóla Íslands. Gunnar býr yfir víðtækri sérfræðiþekkingu á jarðhitakerfum, forðafræði og auðlindastýringu. Áður en hann gekk til liðs við Baseload starfaði hann sem sérfræðingur í jarðvísindum hjá Orkuveitu Reykjavíkur (OR). Hjá OR tók hann þátt í rekstri háhitasvæðanna á Hellisheiði og Nesjavöllum og í þróunar- og rannsóknarverkefnum fyrirtækisins á sviði djúprar ofurheitrar jarðhitavinnslu, m.a. sem aðalrannsakandi Djúpborunarverkefnisins (IDDP). Áður starfaði Gunnar við jarðhitarannsóknir og borholumælingar hjá Íslenskum orkurannsóknum (ÍSOR). Einnig hefur hann um árabil kennt áfanga í forðafræði jarðhitakerfa við Háskóla Íslands og lagt sitt af mörkum til eflingar jarðhitaþekkingar víða um heim í gegnum GRÓ – þekkingarmiðstöð þróunarsamvinnu sem starfar undir merkjum UNESCO.