OKKAR DULDA ORKA
Fræðandi og skemmtileg barnabók um endurnýjanlega orku og samvinnu í þágu jarðar í jafnvægi.
Hverjir eru þínir duldu kraftar?
Hæ! Ég heiti Glóð.Eins og þið vitið eflaust er „glóð“ logandi, rautt og heitt efni, sem á einmitt vel við mig – því ég fæ kraftinn minn frá innsta kjarna jarðarinnar.
Lengi vel áttaði ég mig ekki á því að ég byggi yfir nokkrum sköpuðum krafti. Í raun fannst mér sem ég gæti ekki gert neitt rétt. Fólk var hrætt við jarðskjálftana mína og eldgosin, og jafnvel þegar ég vildi bara leika mér virtist ég alltaf vera að skemma eitthvað óvart.
En það breyttist allt með hjálp vina minna – Sunnu, Blæ, Bergi og Sæ. Rétt eins og sólin, loftið, landið og sjórinn gefa plánetunni okkar allt sem við þurfum til að lifa af, sýndu þau mér að ég hafi einnig mikilvægu hlutverki að gegna!
Auk þess sem hann getur hreyft heilu heimsálfurnar kemur í ljós að hiti frá jörðinni – sem kallast „jarðhiti“ – getur í raun verið notaður til að hita, kæla og knýja heimili, borgir og lönd! Þegar ég vinn svo saman með öllum vinum mínum getum við framleitt ótrúlega mikið af endurnýjanlegri orku í gegnum sól, vind, vatnsafl og jarðvarma.
Við höfum öll eitthvað mikilvægt fram að færa, og saman getur samspil dulinna krafta okkar skapað eitthvað einstakt – jörð í jafnvægi, þar sem allir fá að dafna.
Bókafulltrúar
Styðja bókina
Get your copy
Select your preferred format and language, then click below to proceed to the bookshop.
For orders of 50+ copies, please contact sanja.margetic@baseloadcap.com