OKKAR DULDA ORKA

Fræðandi og skemmtileg barnabók um endurnýjanlega orku og samvinnu í þágu jarðar í jafnvægi.

Hverjir eru þínir duldu kraftar?

Hæ! Ég heiti Glóð.

Eins og þið vitið eflaust er „glóð“ logandi, rautt og heitt efni, sem á einmitt vel við mig – því ég fæ kraftinn minn frá innsta kjarna jarðarinnar.

Lengi vel áttaði ég mig ekki á því að ég byggi yfir nokkrum sköpuðum krafti. Í raun fannst mér sem ég gæti ekki gert neitt rétt. Fólk var hrætt við jarðskjálftana mína og eldgosin, og jafnvel þegar ég vildi bara leika mér virtist ég alltaf vera að skemma eitthvað óvart.

En það breyttist allt með hjálp vina minna – Sunnu, Blæ, Bergi og Sæ. Rétt eins og sólin, loftið, landið og sjórinn gefa plánetunni okkar allt sem við þurfum til að lifa af, sýndu þau mér að ég hafi einnig mikilvægu hlutverki að gegna!

Auk þess sem hann getur hreyft heilu heimsálfurnar kemur í ljós að hiti frá jörðinni – sem kallast „jarðhiti“ – getur í raun verið notaður til að hita, kæla og knýja heimili, borgir og lönd! Þegar ég vinn svo saman með öllum vinum mínum getum við framleitt ótrúlega mikið af endurnýjanlegri orku í gegnum sól, vind, vatnsafl og jarðvarma.

Við höfum öll eitthvað mikilvægt fram að færa, og saman getur samspil dulinna krafta okkar skapað eitthvað einstakt – jörð í jafnvægi, þar sem allir fá að dafna.

Bókafulltrúar

Kynntu þér okkar duldu krafta

Við höfum öll heyrt að mikilvægur þáttur í að hjálpa plánetunni okkar sé að skipta yfir í græna orku. Þetta felur í sér að nota meira af þekktum orkugjöfum eins og sól-, vind- og vatnsaflsorku, en líka jarðhita. Jarðhiti er endurnýjanlegur, áreiðanlegur, hreinn og óendanlegur orkugjafi. Þrátt fyrir þessa ótal góðu kosti vita mörg okkar ekki sérlega mikið um jarðhitann. Við hjá Baseload Capital ákváðum að gera eitthvað í því!

Þess vegna höfum við kynnt til sögunnar Glóð, heillandi aðalsöguhetju barnabókarinnar Okkar dulda orka. Með aðstoð vina sinna kynnist Ignis duldum mætti sínum – hitanum undir fótunum okkar, og því mikilvæga hlutverki sem hún gegnir í vistkerfi sem byggir á endurnýjanlegri orku.

Með heillandi samtölum og fallegum myndskreytingum leitast Okkar dulda orka við að bæði fræða og skemmta næstu kynslóð, sem og foreldrum þeirra og fjölskyldumeðlimum. Saga Glóðar hjálpar til við að auka vitund, skilning og áhuga á jarðhita á sama tíma og hún stuðlar að mikilvægum umræðum um einstaka hæfileika okkar allra og mátt samvinnu við að gera heiminn að betri stað.

Styðja bókina

Vertu vinur Glóðar

Þú getur hjálpað Glóð og vinum hennar – þeim Sunnu, Blæ, Bergi og Sæ – með því að gerast boðberi og deila því með öðrum hvernig samvinna endurnýjanlegrar orku getur bjargað plánetunni okkar. Við vonum innilega að þú munir ganga til liðs við okkur og aðstoða okkur við að dreifa boðskapnum um jarðhitaorku, hvort sem það er sem Fulltrúi, Stuðningsmaður eða Vinur.

Við erum afar þakklát fyrir alla sem leggja hönd á plóg við að kynna mikilvægan boðskap Okkar dulda orka með því að gerast Fulltrúar bókarinnar. Með því að gerast Fulltrúi biðjum við þig að…

  • Sverja þess eið að dreifa boðskap bókarinnar um náttúruvernd og mannúð sem víðast
  • Deila tilteknu markaðs- og kynningarefni
  • Taka þátt í að kynna bókina opinberlega með okkur
  • Kaupa að minnsta kosti 500 eintök af bókinni

Fulltrúar njóta svo ýmis konar verðlauna, eins og til dæmis…

  • Merkið þitt á vefsíðu Glóðar, í kynningartúrum og -ferðum
  • Sérstaks verðs á bókinni
  • Sama verð gulltryggt ef þú vilt kaupa fleiri eintök síðar
  • Sérsniðinn borði og þakklætisbréf inni í bókinni
  • Markaðsefni sem tilgreinir hvernig best sé að kynna bókina, eins og tilbúið efni fyrir samfélagsmiðla, prentefni eins og rúlluborða og sérstakt hönnunarsnið fyrir glærukynningar sem þú getur sömuleiðis merkt þér og þínu fyrirtæki

Stuðningur og aðstoð ef þú vilt koma á laggirnar kynningarferð fyrir Glóð og vini hennar (t.d. með því að kynna Glóð til leiks fyrir fjölskyldum og börnum starfsmanna á viðburðum)

Stuðningsmenn eru þau sem kaupa 100-500 eintök af bókinni og samþykkja þar með að…

  • Sverja þess eið að dreifa boðskap bókarinnar um náttúruvernd og mannúð sem víðast
  • Deila tilteknu markaðs- og kynningarefni

Stuðningsaðilar fá svo…

  • Að setja merkið sitt á vefsíðu Glóðar
  • Markaðsefni sem tilgreinir hvernig best sé að kynna bókina, eins og tilbúið efni fyrir samfélagsmiðla, prentefni eins og rúlluborða og sérstakt hönnunarsnið fyrir glærukynningar sem þú getur sömuleiðis merkt þér og þínu fyrirtæki

Vinir eru þeir sem tengja við boðskap Glóðar og vina hennar og kjósa að deila honum með fólkinu í kringum sig. Þú getur gerst vinur með því að…

  • Panta eintak af bókinni handa fjölskyldu þinni, vinum eða öðrum

Panta bókina

Ef þú vilt panta fleiri en 100 eintök af bókinni, smelltu þá á hnappinn hér að neðan.
Panta núna

Ef þú vilt hins vegar kaupa færri en 100 eintök geturðu nálgast þau hér.

Order your copies now and become an ambassador or supporter.