Jarðhiti – púsluspilið sem vantar

Loftslagsbreytingar aukast á methraða og valda hitabylgjum, flóðum, þurrkum, skógareldum, fellibyljum og fárviðrum. Einn af helstu orsakavöldum loftslagsbreytinga er sú staðreynd að mannkynið hefur brennt jarðefnaeldsneyti eins og kolum, gasi og olíu í meira en 100 ár. Þess vegna hefur magn gróðurhúsalofttegunda aukist í andrúmsloftinu, sem aftur hefur aukið meðalhitastig jarðar til muna.
Markmið: að þrefalda endurnýjanlega orku fyrir árið 2030
Á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna COP28 í Dúbaí í desember 2023 komust fleiri en 100 lönd að samkomulagi um nauðsyn þess að skipta úr jarðefnaeldsneyti, tvöfalda orkunýtni og þrefalda endurnýjanlega orkugetu á heimsvísu fyrir árið 2030 til að berjast gegn loftslagsbreytingum.
Við verðum að ná þessu markmiði til að uppfylla Parísarsamkomulagið og takmarka hækkun hitastigs á heimsvísu við 1,5 °C umfram gildin sem mældust fyrir upphaf iðnbyltingarinnar. Það er engu logið um að mikið sé í húfi.
Endurnýjanlegir orkugjafar eru í miklum vexti – en það vantar púsl í spilið
Góðu fréttirnar eru þær að uppsett afl endurnýjanlegrar orku er í miklum vexti. 2023 var 22. árið í röð sem nýtt met var sett í fjölgun endurnýjanlegra orkugjafa, með aukningu um 50 prósent.
Slæmu fréttirnar eru þær að þetta dugar ekki til. Eins og sakir standa er mesta þróunin í endurnýjanlegum orkugjöfum á borð við sólarorku og vindorku. Þó að þessir orkugjafar séu mikilvægur hluti af heildarmyndinni, þá felur slitrótt og aðstæðubundið eðli sólar- og vindorku í sér áskoranir þegar kemur að áreiðanleika og stöðugleika raforkudreifikerfisins.
Jarðhiti: hreinn, stöðugur, alltaf tiltækur
Hvað vantar þá eiginlega? Okkur vantar stöðuga uppsprettu endurnýjanlegrar grunnorku sem getur tryggt okkur orkuöryggið sem jarðefnaeldsneyti hefur veitt okkur til þessa, en án losunar gróðurhúsalofttegunda. Góðu fréttirnar eru þær að lausnin er þegar fyrir hendi. Dulinn máttur jarðar – jarðhitinn – er búturinn sem vantar í orkupúsluspilið.
Jarðhiti er nýttur með því að beisla varmann undir fótum okkar, undir jarðskorpunni. Þetta er orkuauðlind sem …
- tryggir hreint grunnafl og varma;
- er alltaf tiltæk, óháð veðri eða tíma dags;
- kemur jafnvægi á raforkukerfið og kemur til stuðnings sólarorku og vindorku.