Við stækkum hraðar á sterkum grunni

Tilgangur Baseload Capital er að verða alþjóðlegt fjárfestingaafl sem leiðir framlínuna í þróun og rekstri jarðhita. Okkur mun ekki takast að gera þetta á eigin spýtur. Þess vegna leiðum við breitt og faglegt samstarf sem stuðlar að aukinni nýtingu jarðhita – í þágu jarðar í jafnvægi.
Á heimsvísu er áætlað að jarðhitinn geti fært okkur um 200 GWe (rafmagn) og 5000+ GWth (varmi = hitun og kæling) með hefðbundinni tækni í dag. Þetta er markaðurinn sem við getum sótt inn á, markaður sem stækkar stöðugt með framsækinni tækni og nýstárlegum aðferðum.
Markmið okkar er að styðja við þróun jarðhitavirkjana um allan heim þar sem möguleiki er á að draga verulega úr losun gróðurhúsalofttegunda og njóta á sama tíma heilbrigðrar ávöxtunar eigin fjár. Við veitum sérhverju nýju fyrirtæki í eignasafni okkar eigið fé, fjárhagsuppbyggingu og auðvitað aðgang að víðtækri reynslu okkar og þekkingu.
Svona skörum við fram úr
Við fetum ótroðnar slóðir í jarðhitanýtingu.
Við einbeitum okkur að því að vinna með vannýttar auðlindir með lægra hitastig, þar sem meiri gögn eru aðgengileg, til að stækka markaðinn. En það þýðir þó alls ekki að við myndum fúlsa við tækifærum sem byðu upp á nýtingu auðlinda við hærra hitastig – því er þveröfugt farið.
Við drögum úr áhættu í fjárfestingum með alþjóðlegu eignasafni.
Með því að byggja upp fjölbreytt eignasafn í stað þess að vinna með stök verkefni skapast stærðarhagkvæmni. Með því að dreifa áhættunni minnkum við áhættuna sömuleiðis. Alþjóðlegt eignasafn okkar eykur skilvirkni okkar til muna, því það sem við lærum á einum stað nýtist annars staðar – sem gerir okkur kleift að flýta fyrir nýsköpun og framþróun. Við mætum hverju jarðhitaverkefni fyrir sig með fjárhagslegum verkfærum við hæfi á hverju stigi til að tryggja arðsemi og árangur til langs tíma.
Við vinnum saman að því að stækka iðnaðinn í heild.
Við erum stolt af samstarfsnálgun okkar. Við stefnum að því að stækka allan jarðhitaiðnaðinn, ekki bara okkar eigin hlut í honum. Með því að setja á fót alþjóðlegan jarðhitavettvang samstarfsaðila í allri aðfangakeðjunni, þar sem allir hagaðilar geta deilt þekkingu og reynslu, stækkum við iðnaðinn hraðar saman.
Eigendur okkar
Baseload Capital, ásamt eigendum á borð við Baker Hughes og Chevron New Energies, flýtir fyrir jarðhitaþróun með því að innleiða meira en 100 ár af þekkingu, tækni og reynslu úr olíu- og gasiðnaðinum.
Baseload Capital er ein fyrsta evrópska fjárfesting Breakthrough Energy Ventures, stofnað af Bill Gates, og ber því ákveðið gæðamerki þar sem Breakthrough Energy fjárfestir aðeins í fyrirtækjum sem geta dregið úr losun að minnsta kosti hálfs gígatonns gróðurhúsalofttegunda.
Aðalhluthafi okkar er fjölskyldusjóðurinn Gullspång, sem fjárfestir til langs tíma í eignasafni fyrirtækja sem tengjast orku, matvælum og vatni. Aðrir eigendur eru fjárfestingarfélögin Blue og LMK Forward.
Okkar framtíðarsýn
Okkur dreymir um jörð í jafnvægi þar sem þróttmikil samfélög eru knúin áfram af endurnýjanlegri orku.
Markmið okkar
Við vinnum í þágu jafnvægis á jörðinni með því að leiða samstarf við þróun og stækkun jarðhitaverkefna.
Gildin okkar
Við erum þrautseigir, framsæknir og framsýnir frumkvöðlar.